Æfingaaðild
Besta leiðin að bætingum!
Sem meðlimur í æfingaaðild Golfstöðvarinnar getur þú bókað golfhermi daglega í 30-60 mínútur í senn án þess að greiða fyrir annað en fasta mánaðarlega upphæð, 19.900kr* (9.900kr yfir sumartímann).
Aðildin okkar er einstök að því leiti að það er engin kvöð um það hvenær er bókað. Það má bóka fyrripart, seinnipart, um helgi eða hvenær sem er einfaldlega ef það er bara 1 klst á dag.
Engin binding, endilega prófaðu mánuð með því að skrá þig hér að ofan. En sé áskriftinni ekki sagt upp fyrir lok tímabils heldur hún áfram þangað til henni er sagt upp.
Ath:
- Aðildin er hugsuð fyrir einn einstakling. Sá einstaklingur má taka með sér gesti en ekki senda aðra fyrri sína hönd í bókaða tíma.
- Aðildin byrjar daginn sem þú skráir þig, það getur t.d. verið um miðjan mánuð, þarf ekki að vera um mánaðarmót.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að senda á golfstodin@golfstodin.is