Sjúkraþjálfararnir
Bjarni Már Ólafsson

Eigandi Golfstöðvarinnar, sérhæfir sig í sjúkra- og styrktarþjálfun golfara með áherslu á æfingamiðaða meðferð. Er með TPI golfstyrktarþjálfaragráðu og margra ára reynslu af einkaþjálfun og íþróttaþjálfun.
Einkaþjálfari- og sjúkraþjálfari í Hreyfingu 2015-2024
TPI Level 1 certified
TPI Power Level 2
TPI Medical level 2
Skúli Pálmason

Skúli hefur sérstakan áhuga á því að hjálpa íþróttafólki og þeim sem stunda líkamsrækt að ná hámarksárangri og koma sterkari til baka eftir meiðsli. Hann starfaði í mörg ár sem einkaþjálfari, þjálfaði hópa sem hétu "Sterkar stelpur" og hefur síðan verið með fjölmargar stelpur í fjarþjálfun í sama programmi.
Skúli er Grindvíkingur og var búinn að útbúa sjúkraþjálfunaraðstöðu og líkamsrækt í bílskúrnum í sínum heimabæ en því miður fór illa fyrir því húsnæði í jarðskjálftunum sem fylgdu gosumbrotunum. Nú er hann fluttur í höfuðborgina og kominn á fullt í golfið!
BSc í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands 2013
TPI golfstyrktargráða
TPI Medical L2
Sjálfstætt starfandi einkaþjálfari frá 2010
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari frá 2024