Bjarni Már Ólafsson

 

Bjarni Már er eigandi Golfstöðvarinnar. Hann var keppnismaður í frjálsum íþróttum en hefur fundið keppnisskapinu farveg í golfinu síðustu árin. 

 

Nokkur orð frá þér sjálfum Bjarni Már?

Ég er lærður sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands, og hef starfað sem sjúkraþjálfari og einkaþjálfari í Hreyfingu í Glæsibæ síðustu 9 árin. Er með Tpi þjálfaragráðu og framhaldsgráðu í power þjálfun og medical greiningum golfara (Titleist performance institute). 

Ég sérhæfi mig í styrktarþjálfun og sjúkraþjálfun golfara. Ég hef alla tíð verið mjög æfingamiðaður sjúkraþjálfari, nota ekki mikið raftæki eða bekkjarmeðferð heldur reyni eftir fremsta megni að þjálfa fólk til betri heilsu. Ég hjálpa golfurum að auka kylfuhraða, vera sterkari kylfingar, spila golf með minni verki. Ég hef unnið með ungum golfurum, afrekskylfingum, öldungum, kylfingum fyrir og eftir hnjáliðskipti, mjaðmaliðskipti, brjósklos, axlaaðgerðir ofl. Ég tek á móti fólki í einkaþjálfun, hóptíma, sjúkraþjálfun, Tpi hreyfigreiningu og fjarþjálfun.

Ef þú vilt setja þig á biðlista til að komast í einkaþjálfun hjá Bjarna er best að senda póst á bjarni@golfstodin.is