Fyrsta heimsókn
Í fyrstu heimsókn förum við yfir stöðuna eins og hún er í dag og förum yfir heilsufarssöguna. Eftir viðtal er tekið ýtarleg skoðun og greining á stöðunni og framhaldið rætt. Í Golfstöðinni viljum við taka sem fjölbreyttastar mælingar og viðmið þannig við getum mælt framfarir og bætingar og sýnt fram á þær með skýrum hætti.
Ef þú ert með beiðni í sjúkraþjálfun mælum við með því að þú bókir fyrstu heimsókn í gegnum Noona.
Ef þú ert ekki með beiðni fyrir sjúkraþjálfun en vilt koma í Hreyfigreiningu og fá aðstoð með þjálfun í framhaldinu er best að þú bókir hreyfigreiningu í gegnum Noona.