siglingastefnu

Afhendingar- og sendingarmáti

Sé vara keypt í vefverslun Golfstöðvarinnar getur kaupandi ýmist valið að sækja í Golfstöðina, Glæsibæ (Álfheimar 74, 104 RVK), eða valið að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað. Golfstöðin er mönnuð starfsmanni á milli 6:30-16 flesta virka daga en það er hægt að semja um að sækja vöru utan þess tíma. 

Sóttar pantanir:
Golfstöðin tekur sér 2-3 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun. Viðskiptavinur, sem pantað hefur í gegnum vefverslun Golfstöðvarinnar en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, þegar hann sækir pöntunina.

Sendar pantanir:
Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur Golfstöðin sér 2-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Gjald fyrir sendingu í póstbox dropp er 990 kr. m/vsk   en fellur niður ef verslað er fyrir kr. 15.000,- eða meira. 

Dropp er dreifingaraðili Golfstöðvarinnar og sér um sendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp. Eingöngu er hægt að fá vörur Golfstöðvarinnar sendar innan Íslands. Golfstöðin áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.