Atli Albertsson
Atli er einstakur þjálfari og karakter. Hann er reynslumikill og afskaplega vinsæll þjálfari, enda með þægilega nærveru og jákvæður í fasi. Drífandi frumkvöðull sem lætur verkin tala.
Þú kannski segir aðeins frá þér Atli?
Atli Albertsson heiti ég, skagamaður en er búsettur núna í kópavogi.
Alla mína tíð hefur hreyfing og heilbrigt líferni verið stór partur af mínu lífi en í byrjun var fótboltinn sem var það eina sem komst að, ég æfði ég og spilaði upp í meistaraflokk. Þegar ég hætti fótboltaiðkun tók við nám við íþróttafræði í háskólanum í reykjavík.
Eftir námið byrjaði ég að þjálfa í líkamsræktinni á Hilton ásamt því að sinna styrktarþjálfun hjá Gróttu og Aftureldingu.
Síðustu ár hef ég unnið með einstaklingum og íþróttafélögum sem vilja ná lengra í sinni íþrótt eða koma heilbriðgu líferni inn í sitt líf til framtíðar.
Hugur minn og áhugi hefur alltaf verið í átt að heilbrigðu líferni og er það eina sem kemst að í mínum huga. Ég er því tilbúinn að hjálpa þér að koma heilbrigðu líferni inn í þína lífs rútínu af miklum áhuga!