Um sjúkraþjálfun
Í Golfstöðinni er starfandi sjúkraþjálfun. Hún er eins og aðrar almennar sjúkraþjálfunarstöðvar með samning við sjúkratryggingar Íslands.
Þú getur komið í 5 sjúkraþjálfunartíma án þess að vera með beiðni frá lækni en eftir það þarftu beiðni.
Hér er hægt að skoða gjaldskrá sjúkratrygginga en svo getur hver aðili skoðað hver heildar greiðsluþátttaka hans er í hverjum mánuði á sínu svæði inni á www.sjukra.is (Skoða dálkinn Heilsa og þar er það undir Greiðslumark).
Við tökum við kúnnum í alla almenna sjúkraþjálfun en erum með sérstaka reynslu í öllu sem við kemur golfiðkun.