Fjarþjálfun

 

Ef þú ert nú þegar með kort í líkamsrækt sem hentar þér vel eða ert með aðstöðu heima þá er kjörið að koma í Hreyfigreiningu og fá svo sérhæft æfingaplan til þess að vinna í þar sem hentar, þegar hentar. 

Æfingarnar færðu sendar í appi þar sem góðar útskýringar og myndbönd af æfingunum fylgja. Þar eru þyngdir skráðar inn og hægt að senda skilaboð og fá skilaboð beint frá þjálfara á meðan þú ert í þjálfun.

Þú getur líka skráð þig í fjarþjálfun án þess að koma í hreyfigreiningu. Þá færðu aðgang strax að fjarþjálfunarappinu sem leiðir þig í gegnum æfingar dagsins í Golfstyrk sem kenndur er í Golfstöðinni. Það eru vandlega samsettar æfingar sem miða að því að styrkja, liðka og auka sprengikraft kylfinga. 

Hér getur þú skráð þig í Golfstyrk í fjarþjálfun